Tokio Hotel rocks, and you know it :Þ

Don´t drink water, fish have sex in it (tokio hotel rocks:P)

02.01.2007 20:08:21 / 7fn_Sara

Gleðilegt nýtt ár!!

hæhæ allir. Nú þegar að nýtt ár er komið þá er ætlun okkar shave að vera duglegri að blogga 8) En litli bróðir minn er að halda upp á afmælið sitt hann er 13 ára í dag, til hamingju með daginn brói ;) :haha:. Nú eru ungarnir orðnir 2 vikna og því þarf ég bráðum að fara að hugsa um nöfn á þá. Þannig að ef ykkur langar að taka þátt í að velja nafn á ungana þá bara commentiði:D.

Kv. Shra


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 20:58:47 / 7fn_Sara

Gleðileg Jól

Gleðileg jól allir. Ég er búin að hafa það svo gott um jólin ekki gera neitt nema að slaka á borða góðan mat, horfa á sjónvarpið og lesa. Ég fékk 4 bækur í jólagjöf, Eragon nr. 2, Artemis Fowl Týnda eyjan, Battel Angel Alita og drekafræði. Ég fékk líka Charmed 4. þáttaröð, peysur og náttbuxur, eyrnalokka og armband, body lotion. Já og einn bangsa og líka nammi. Ég er nú bara búin að vera að lesa Artemis bókina og kláraði hana nú í gær og er byrjuð á Eragon. Núna eru stökkmúsa ungarnir orðnir 9 daga gamlir og það er kominn pínu litur á þær, ein er miklu dekkri en hinar og ég vona að hún verði svört. En núna ætla ég að fara að hætta og fara að horfa á sjónvarpið. Bless Bless. Kv. Shra

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:52:08 / 7fn_Sara

Jibbi :P

Aloha fólk, ég veit ég veit! Langt síðan. En heiriði ég fékk í nóvember (29. nánar) stökkmús og litli bróðir minn fékk eina líka. Allt gott með það, vesenið var bara að ég fékk strák og hann brói fékk stelpu.8| Þið getið ýmindað ykkur hvað kom næst. :| Aha ungar, síðastliðna nótt eða nóttina 17, des fæddust 4 ungar (call me crazy) og mér finnst þeir vera alveg gullfallegir, þótt að þeir séu hárlausir, bleikir og blindir.:haha: Þannig ef að þið þekkið mig og ykkur langar alveg ógeðslega mikið í stökkmús efti svona 4-8 vikiur þá látiði mig vita og við spjöllum saman 8). Já við vorum að spila á tónleikum Tónskólans. Við spiluðum: "I whis I was a punk rocker" og "With or without you"( afsakið stafsetningu, þú bara comentar ef að þú sérð villu Shave;)) og það var nú bara tekið okkur vel. Shavin mín er nú söngvari og pínu gítarleikari, ég er nú nokkkurn veginn bassaleikari og oggu pínsu lítið bakrödd og svo er nú hún Anja mín er nú trommarinn (K). Já og ekki má gleyma Erlunni hún er líka trommari en ég er ekki viss hvernig við eigum að leisa þetta vandamál með 2 trommara, en það kemur bara í ljós. Allir í nánustu famelíu voða stoltir.8) En best að hætta að gera svona löng blogg alltaf og gera fleiri minni ;Þ Bless allir og góða nótt 

Kv. Shra

P.S. Þótt að ég skrifi "góða nótt" þá þýðir það ekki að ég sé að fara að sofa.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 14:04:02 / 7fn_Sara

ókei við erum i alvöru byrjaða aftur núna

Halló fólk.
Shave hér. Ég ætla bara að skrifa aðeins um daginn og veginn:P Það er búið að vera frekar busy hjá okkur undanfarna... mánuði:^). En við erum búnar að vera á fullu að æfa fyrir tónleika tónskólans sem að eru á mánudaginn :o. Við erum jafnvel komnar með nafn... Personal Snowstorm!! Gegt flott er það ekki?? Ef ekki þá þurfið þið ekkert að segja neitt :$ If you don't have anything nice to say, don't say anything at all. Svo eru bara fimm dagar í jólafríið... tæknilega fjórir vegna þess að það er enginn skóli á miðvikudaginn nema litlu jólin kl. sex um kvöldið. Rakel systir kom á miðvikudaginn seinasta og verður hérna í jólafríinu:D Það verður stuð. Shra var á Eragon í gær og hún fór strax eftir skóla þannig að við hittumst ekkert allan daginn, svo hringir hún í mig í röðinni á leið á myndina og segist leiðast... HENNI leiddist, hvað þá mér. En allavegana svo hringir hún í mig um kvöldið og biður mig um að koma og sjá allt dótið sem hún keypti sér en ég nennti ekki að fara svo að ég ætla bráðum út í búð að kaupa mér nammi og fer svo til hennar :D
En ég kveð núna... Sayonara
                       Shave:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 10:36:52 / 7fn_Sara

Við erum byrjaðar aftur!!

Halló fólk!!

Vegna nýjustu frétta af Tokio Hotel höfum við ákveðið að byrja upp á nýtt með síðuna. Shra var að segja mér frá því að tokio hotel hefur þýtt nokkur lög yfir á ensku og ég er að hlusta á þá as we "speek". ég ætla bara að vona að þið nennið að skoða síðuna okkar og helst hlusta á lögin inná www.radioblogclub.com. vonandi lýst ykkur vel á, ef ekki ekkert vera að láta okkur vita neitt af því hvað við erum miklir nördar, við vitum það nú þegar :P.

Takk fyrir að nenna að lesa þetta og endilega commenta( en ekki um danmerkurferðina né eitthvað neikvætt um tokio hotel)
bæ, beibes


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 13:12:51 / 7fn_Sara

2 dagar í danmörk!!!

jæja, núna eru bara tveir dagar í danmörk!!! og ég hlakka geðbilað til. Ég er loksins búin að koma mp3. spilaranum mínum í gang og er með ógeðslega mörg lög inná honum:D en svo kem ég ekki neinum blooodhoundgang llögum inná hann:( ég er farin að dýrka bloodhound gang geðbilað mikið. hér er slóðin inná fan/hate síðuna þeirra http://bloodhoundgang.com/, endilega kíkið:D:D:D
en ég kveð í bili, Shave

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 19:38:35 / 7fn_Sara

Blézuð

hæ, núna eru mummz og ellz komin heim frá mexikó og komu með fullt af glingri handa okkur systkinunum. ég fékk fjögur armbönd sem að klingir geðbilað í, og fullt af öðru stuffi. Svo komu þau auðvitað með fullt, fullt af nammi úr fríhöfninni. Þorbergur fór líka út en hann fór til Danaveldis með ömmu og afa og kom líka heim með fullt fullt af nammi. Svo gaf hann mér geðbilaðslega sæta lyklakippu, svona lítill kusubangsi og rakel fær lítið lamb. Þetta eru svona 3-in-1 uppáhalds hlutir(bangsi, lyklakippa og KUSA:D) ég er búin að vera í bæjarvinnunni á 3 vikur bara fyrir hádegi, að gróðursetja blóm, raka steina, taka og tína rusl og svona svo bauðst okkur að vinna í eina viku í við bót allan daginn og maður drífur sig bara í það:D
en ég ætla að fara að hætta þessu og kveðja
Shave

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 18:30:14 / 7fn_Sara

Hæhæ

Hej vóv. Ég held nú að það sé kominn tími til að blogga. Sammála? Jæja. Mamma hennar Shave og Elli eru nú í Mexico og eru á leið heim (held ég allavega);). En það er ein vika ettir í bæjarvinnunni. En á morgunn er flott án fíkniefna dóteríið. Og við erum bara að fara að leika okkur á launum. Hlakka gg* til.8) Ég er nú komun með nýja leikjadellu, sem heitir Trivia. Hún er á leikjanetinu, hér er slóðin www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=151 og ég legg til að allir prófi. En nú er ég búin að blogga, og já á meðan ég man. Ég fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangurinn í mínum bekk. Hah frekar gott finnst mér, bara fimmta skiptið í röð:^):haha:. En ég ætla nú að fara að hætta þessu.

Kv. Shra


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 12:33:32 / 7fn_Sara

:haha:Prófin búin:haha:

Jæja þá eru prófin búin og þemavikan að fara að byrja. Við Shra erum saman í hóp (naturally) og þemað okkar er manga og anime(naturally). Við erum búnar að ákveða hvað við þurfum að gera en við þurfum að nota tölvur og það eru makkar niðri í skóla sem maður kann náttúrulega ekkert á. Það er allt á kafi á snjó í MAÍ!!! Það voru tónleikar í tónskólanum á mánudaginn og hljómsveitin var að spila (ég syngja, shra bassi, kristín gítar og erla trommur). Áður en við fórum á sviðið, þá sagði Jón Már við mig að það versta sem gæti komið fyrir væri að klúðra texta, hann var auðvitað að reyna að taka mig af taugum, svo þegar Kynslóð 625 var að spila, hver heldurðu að hafi klúðrað textanum, nema Jón Már:D. Ég ætlaði svo að nudda honum upp úr þessu en ég er varla búin að sjá hann síðan.

jæja, guess i'll wrap it up then, see ya later aligator,

Shave


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 12:25:07 / 7fn_Sara

Páskafríið búið

Jæja, nú er páskafríið búið og skólinn byrjaður aftur. Ég var í fermingu hjá Önnu Cristinu um helgina og varð veik í leiðinni:evil:. Núna er ég heima að kafna úr kvefi. Það eru bara þrír dagar í ferminguna mína og ég get ekki beðið. Ég hlakka svo til :haha::haha::haha::haha:

ég hef ekki meira að segja svo

bæbæ, Shave


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 17:58:36 / 7fn_Sara

Páskafrí

Hæhæ, núna er maður bara kominn í páskafrí og það er svo sem ágætt en mér leiðist bara svo hrikalega:$ Ég hef ekkert að gera, en ég er reyndar búin að fara á bretti í dag og í gær með Rakel og það var svo sem fínt en ég þarf að hitta fólk !!!!!!!!! Ég er gjörsamlega að mygla úr leiðindum. Ég fór á Passíusálmalestur í morgun og var þarna í klukkutíma og það var bara komið að tíunda sálmi og ég ætlaði að vera þarna að minnsta kosti að tuttugasta og öðrum að hlusta á Kristínu lesa en ég bara gat það ekki. MÉR LEIÐIST SVO

Shave


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 13:38:14 / 7fn_Sara

Fréttir frá Ólafsfirði

Sælt veri fólkið, ég heiti Shave og mun vera fréttaþulur í dag/kvöld.

Helst í fréttum er þetta: Árshátið Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar var fimmtudaginn 30. mars síðastliðinn og tókst hú ágætlega. Fyrsta atriði sem var á dagskrá var atriði bekkjarins okkar Shru og var það Sjálfstætt fólk. Þar ræddi "Jón Ársæll" við fjölda gesta, Ara húsvörð skólans sem leikinn var af Axel Birgissyni, Stínu kennara sem leikin var af Baldvin Orra, Sigríði Mundu, leikin af Halldóri Ingvari, Bergljótu stuðnigsfulltrúa leikin af Ingimar Elí, Inga kennari leikin af Örnu Maríni og Stefaníu bæjarstjóra, leikin af okkar eigin Shru.

 Næsta atriði 8. bekkjar var Stórhættulegur vinnustaður sem fjallaði um kvöldið sem Inga kennari læstist inni. Þar var ég þulur, Shra lék hlutverk Ingu, Kristín lék Döggu og Anna Margrét lék Þórgunni.

 Strax eftir það var þriðja atriði okkar, Glópus og Glapus, um tvö riddara og þrjú ill tré. Hjalti Snær var Glópus, Axel var Glapus, Friðrik Örn var höfðingi trjánna og aðstoðarmenn hans voru leiknir af Pálma og Villa og að lokum var Kristín þulur.

Seinasta atriði okkar var magadans leiddur af Hjalta og aðrir dansarar voru ég, Shra, Ingimar, Axel, Lilja, Frikki og Villi.

Einnig voru níundi og tíundi bekkur með atriði. Níundi var með fréttaþátt, stelpurnar í tíunda með nokkur atriði úr Ávaxtakörfunni og strákarnir voru með nokkur vidíóbrot.

Seinustu atriðin voru atriði kennara og voru þau ekki síður skemmtileg en atriði nemenda.

Og nú að veðri...það er ógeðslegt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 14:49:41 / 7fn_Sara

Í Rvk.

Hæhæ

ég skrifa frá reykjavík, á þessum yndislega sunnudegi8)ég var í gær að gista hjá vinkonu minni, Guggu, og við fórum í pottinn, borðuðum nammi og horfðum á mynd sem var gerð eftir bókinni "Gallabuxnaklúbburinn"hún var bara nokkuð góð.

Ég hef ekki mikið meira að segja

Shave(P.S. Odda og Anna voru þarna líka)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 12:49:08 / 7fn_Sara

Blogg

Ég ætlaði bara að að blogga smá. Í gær ætlaðum við með bekknum í bíó en við komust ekki af því að við gátum ekki reddað fari svo að við horfðum bara á mynd í skólanum um kvöldið og þegar það var búið fórum við eitthvað að hanga með Önnu, Örnu, Lilju, Badda; Dóra og Hjalta vorum fyrst bara eitthvað úti í smástund en svo fórum við heim til dóra og vorum þar í smástund og fórum svo aftur út. Strákarnir buðu okkur í pottinn og ég ætlaði að fara en svo hringdi mamma í mig :evil: svo að ég þurfti að fara heim. Ég horfði á Rush Hour 2 en fór svo að sofa.

þar til næst, Shave;)

p.s. það er bara ykkar skoðun að tokio hotel sukkar, við megum alveg hlusta (og horfa) á það sem við viljum :evil:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 21:27:50 / 7fn_Sara

Hej hej

Halló Shra hérna eikað að djast hérna hjá "Snoopy lover" og mér fannst bara að ég yrði að updata fréttum hérna. Sólarhringsballið er nú búið og það var geðveikt, þótt að ég hafi nú sofnað en kíkið á myndirnar á www.olafsfjordur.is/felo/myndir/2006/solarhr.2/index.htm  þar eru nokkrar myndir úr sólarhringsballinu en fariði á www.olafsfjordur.is/felo og skoðið myndirnar það eru fleiri. Ehh :Ség veit ekkert hvað ég ætti að sejga meir nema að herbergið mitt er til, loksins.       Kv. Shra8)   


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2